Get the Flash Player to see this player.
 
Forsíða
 
1662. bæjarstjórnarfundur
Föstudagur, 03 Febrúar 2012

Miðvikudaginn 8. febrúar 2012 heldur bæjarstjórn Seyðisfjarðar almennan fund í íþróttamiðstöðinni (fundarsal 3. hæð) og hefst fundurinn klukkan 16.00. Dagskrá: 1. Jafnréttisstefna og verkefnaáætlun Seyðisfjarðarkaupstaðar. 2. Fundargerð bæjarráðs nr. 2196. 3. Fundargerð bæjarráðs nr. 2197. 4. Fundargerð bæjarráðs nr. 2198. 5. Fundargerðir nefnda: a) Fundargerð fræðslunefndar dags. 17. janúar 2012. b) Fundargerð hafnarmálaráðs dags. 18. janúar 2012. c) Fundargerð íþrótta- og æskulýðsnefndar dags. 31. janúar 2012.

Seyðisfirði  3. febrúar 2012.
- Bæjarstjóri -

 
Nýr Seyðfirðingur
Þriðjudagur, 31 Janúar 2012

Þann 19. nóvember 2011 eignuðust Hjalti Þór Bergsson og Elena Marusyak son.  Prinsinn, sem hefur ekki enn fengið nafn, fæddist á Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupsstað.  Fyrir eiga þau Hjalti og Elena soninn Aron Berg, en hann var einmitt fyrsti Seyðfirðingurinn sem fæddist á árinu 2010.  Vilhjálmur Jónsson bæjarstjóri heimsótti fjölskylduna í dag og færði þeim lítinn glaðning frá kaupstaðnum.  Fjölskyldunni er óskað hjartanlega til hamingju með fallega soninn.  Myndir af nýfæddum Seyðfirðingum má sjá í albúmi.

Hjalti Þór, Elena, Vilhjálmur bæjarstjóri og ónefndi prinsinn.

 

 
Hollvinasamtökin og Lions klúbburinn færa Sjúkrahúsinu gjafir
Þriðjudagur, 31 Janúar 2012

Hollvinasamtök Sjúkrahússina á Seyðisfirði (HSSS) voru stofnuð 24. janúar 2008 og eru því kornung eða fjögurra ára.  Á stuttri starfsævi hafa þau  verið dugleg við að standa þétt  við bakið á ágætu starfsfólki og skjólstæðingum Sjúkrahúss HSA á Seyðisfirði. Lions klúbburinn á Seyðisfirði, þar sem allir félagar eru meðlimir og vildarvinir í HSSS, hafa haft það sem verkefni til fjölda ára að styðja vel við starfsemi Sjúkrahússins og fært þeim margar góðar gjafir gegnum árin. Hér er því  um ómetanlegan stuðning vildarvina að ræða.  Nú þegar sótt er að heilbrigðisþjónustunni á landsbyggðinni og fjárveitingar ríkisins skornar grimmilega niður ár eftir ár er það skylda okkar að standa vörð um og verja heilbrigðisþjónustuna í heimabyggð. 

Janúar 2012.

Með fylgjandi mynd er tekin af Ómari Bogasyni. Frá vinstri Þórhallur Harðarsson - Jón H. Guðmundsson - Ómar Bogason - Rúnar Reynisson - Þorvaldur Jóhannsson - Árni Elísson - Sigrún Ólafsdóttir - Lukka Gissurardóttir - Þóra Invaldsdóttir. 

Lesa meira...
 
Viskubrunnur 2012
Mánudagur, 30 Janúar 2012

Nú er aðeins rúm vika þar til hin sívinsæla gáfnakeppni Seyðfirðinga - Viskubrunnur- hefst! Heyrst hefur að liðin stundi nú stífar æfingar í bústöðum og heitum pottum um allan fjörð enda mikið í húfi og afar spennandi að sjá hverjir hafa vitsmunalega yfirburði í bænum okkar. Þeir sem ætla hins vegar að sleppa æfingaferlinu og mæta beint til leiks ættu þó strax að huga að mönnun liðsins svo allir verði klárir í slaginn, miðvikudaginn 8. febrúar. Enn eru nokkrir sauma(kjafta)-, súpu- og matarklúbbar sem eiga eftir að skrá sig til leiks, en ekki örvænta, það er enn tími! Við tökum við skráningum fram á föstudag í síma: 472-1172 eða á netföngin: Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það eða Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það Í næsta Skjá munum við svo birta niðurröðun liða á keppniskvöldunum. 

Hlökkum til að sjá ykkur 8.-9. bekkur.

 
Auglýsing vegna úthlutunar byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2011/2012
Föstudagur, 27 Janúar 2012

Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum um byggðakvóta til fiskiskipa fyrir eftirtalin byggðarlög skv. ákvæðum reglugerðar nr. 1182/2011 um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2011/2012. Grundarfjarðarbær  (Grundarfjörður). Borgarfjarðarhreppur (Borgarfjörður eystri). Seyðisfjörður. Breiðdalshreppur (Breiðdalsvík). Djúpavogshreppur (Djúpivogur). Umsóknum skal skilað til Fiskistofu á eyðublaði sem er að finna hér.  Umsóknarfrestur er til og með 10. febrúar 2012.

Fiskistofa 26. janúar 2012.

 
Laust starf
Fimmtudagur, 26 Janúar 2012

Seyðisfjarðarkaupstaður auglýsir eftir leikskólastjóra við leikskólann Sólvelli. Um tímabundna ráðningu er að ræða til 1. ágúst 2012. Ráðið verður í starfið 1. febrúar 2012. Sjá nánar um starfið hér til hægri undir 'laus störf'. Umsóknarfrestur er til og með 31. janúar 2012.

 


 
Sunndagur 5. febrúar
 Úr myndasafni
Brimberg - starfsmannaferð september 2010
Ýmislegt
Aðalskipulag 2010-2030
Aðsendar greinar
Eyðublöð
Fjallagarpar Seyðisfjarðar
Fjölmenningarsetur
Gjaldskrár
Kosningar 2010
Laust húsnæði hjá Seyðisfjarðarkaupstað
Laus störf
Myndir
Netfanga- og símaskrá
Póstlisti
Samþykkt um hunda- og kattahald
Seyðfirðingar vikunnar
Sorpflokkun
Tenglasafn
Upplýsingarit fyrir nýja íbúa
Útgefið efni
Veðrið á Austurlandi
Visit Seydisfjordur
Nýjustu fundargerðir
Viðburðir

Seyðisfjarðarkaupstaður - Hafnargötu 44 - 710 Seyðisfjörður - Sími 470 2300 - Fax 472 1588 - sfk@sfk.is - Kt. 560269-4559