Get the Flash Player to see this player.
 
Forsíða arrow Laus störf
Advertisement
Laus störf hjá Seyðisfjarðarkaupstað PDF Prenta Rafpóstur

Umsókn um starf hjá Seyðisfjarðarkaupstað 
Til þess að ná í eyðublaðið þarf að hafa Acrobat Reader uppsettan í tölvunni.  Hér má nálgast Acrobat Reader.   . 

Sumar 2010.

A: Flokkstjórar - júní, júlí, ágúst.  Áætlaðar 11-12 vikur.

Umsækjendur munu starfa með ungu fólki að viðhaldi og uppbyggingu grænna svæða og útliti bæjarins.  Gerð er krafa um að flokksstjórar séu orðnir 20 ára.  Flokkstjórar vinna með sínum hópum og eru undir stjórn verkstjóra.  Daglegur vinnutími er 8 tímar.  Ekki verður um yfirvinnu að ræða nema tilfallandi.  Hæfniskröfur: reynsla og eða menntun í störfum tengdum ungu fólki, ánægja af útivist og garðyrkju.  Létt lund, stundvísi, dugnaður og snyrtimennska.

B: Starfsmann á sláttuvél (vinnuvélaréttindi) og dráttarvél (bílpróf eða vinnuvélaréttindi).
Umsækjendur sem höfðu lögheimili á Seyðisfirði 1. des. 2009 sitja fyrir um störf.

Umsóknarfrestur um A- og B lið er til og með 21. maí næst komandi.  Umsóknir eiga að vera skriflegar og skilast á bæjarskrifstofu eða í tölvupósti á Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það .  Í umsókn skal koma fram: almennar upplýsingar, menntun, fyrri störf og annað sem umsækjandi telur viðeigandi.  Einnig má skila inn umsóknum

C: Unglingavinna og önnur störf - júní, júlí, ágúst.  Áætlaðar 10 -11 vinnuvikur. 
Daglegur vinnutími 7 stundir (kl. 8.00 -12.00  og 13-15.40 ). Kaffitími er fyrir hádegi, en kaffitíma kl. 15.40 er sleppt

D: Vinnuskóli:
Börn fædd 1994 og 1995. (15 og 16 ára) - júní, júlí, ágúst.  Áætlaðar 10 - 11 vinnuvikur.  
Daglegur vinnutími 7 stundir (kl. 8.00 - 12.00 og 13-15.40).  
Börn fædd 1996 (14 ára) - júní, júlí.  Áætlaðar 5 - 7 vikur.
Daglegur vinnutími 3,5 stundir. 

Umsækjendur í unglingavinnu og vinnuskóla (C og D) skrái sig á bæjarskrifstofu. Þeir umsækjendur sem höfðu lögheimili hér 1. des. 2009 sitja fyrir um störf.

Daglegur vinnutími árganga (C og D) getur breyst, m.a. vegna fjölda umsókna sem berast.  Frekari upplýsingar gefnar á bæjarskrifstofu, Hafnargötu 44, sími 470-2300

Seyðisfirði 27. apríl 2010
Bæjarstjóri / bæjarverkstjóri.

 

 
Laugardagur 11. september
 Úr myndasafni
Sjómannadagshóf 2006.
Ýmislegt
Aðalskipulag 2010-2030
Eyðublöð
Fjallagarpar Seyðisfjarðar
Gjaldskrár
Kosningar 2010
Laus störf
Myndir
Netfanga- og símaskrá
Póstlisti
Samþykkt um hunda- og kattahald
Seyðfirðingar vikunnar
Sorpflokkun
Tenglasafn
Útgefið efni
Veðrið á Austurlandi
Nýjustu fundargerðir
Viðburðir

Seyðisfjarðarkaupstaður - Hafnargötu 44 - 710 Seyðisfjörður - Sími 470 2300 - Fax 472 1588 - sfk@sfk.is - Kt. 560269-4559