|
Þann 3. febrúar 2006 hóf göngu sína hér á Seyðisfjarðarvefnum vikulegur þáttur sem nefnist Seyðfirðingur vikunnar og gengur út á það að fá Seyðfirðinga til þess að deila með öðrum skemmtilegum / girnilegum / uppáhalds- uppskriftum. Sá sem er Seyðfirðingur vikunnar skorar á einhvern annan til þess að vera næst og þannig gengur þetta koll af kolli. Hér hefur verið safnað saman öllum Seyðfirðingum vikunnar frá upphafi og birtast uppskriftirnar í öfugri tímaröð þannig að nýjustu Seyðfirðingarnir eru alltaf efst. Njótið vel.
Ásdís Seyðfirðingur vikunnar
fimmtudagur, 28 desember 2006
Ásdís Benediktsdóttir er Seyðfirðingur vikunnar en Gunnþórunn Gunnlaugsdóttir skoraði á hana fyrir jól. Ásdís gefur okkur hér uppskrift af kjúklingasalati sem hentar vel svona á milli hátíða. Ásdís skorar svo á Heimir Jóhannsson að vera Seyðfirðingur næstu viku.
Tóta Seyðfirðingur vikunnar
fimmtudagur, 14 desember 2006
Seyðfirðingur vikunnar að þessu sinni er Gunnþórunn Gunnlaugsdóttir, Tóta, en Hrönn Ólafsdóttir skoraði á hana í síðustu viku. Tóta gefur okkur hér uppskrift að góðum fiskrétti, smjörsteiktum kola og skorar svo á Ásdísi Benediktsdóttur matgæðing að vera Seyðfirðingur næstu viku.
Hrönn Ólafsdóttir Seyðfirðingur vikunnar
mánudagur, 11 desember 2006
Af óviðráðanlegum orsökum komst Seyðfirðingur 49. viku ekki í loftið, beðist er velvirðingar á því. Seyðfirðingur 49. viku er Hrönn Ólafsdóttir. Hrönn er hér með uppskrift af gómsætri Laxasúpu og og girnilegu svínafillet.
Ragga Seyðfirðingur vikunnar
fimmtudagur, 30 nóvember 2006
Seyðfirðingur vikunnar að þessu sinni er Ragnheiður Gunnarsdóttir, Ragga, en Unnar og Zanda skoruðu á hana í síðustu viku. Ragga gefur okkur hér uppskrift að Skelfisksúpu ilmandi af karrý og kókos og svo skorar hún á vinkonu sína Hrönn Ólafsdóttur og hennar ektamaka Guðjón Harðarson að vera Seyðfirðingar næstu viku.
Unnar og Zanda Seyðfirðingar vikunnar
fimmtudagur, 23 nóvember 2006
Skötuhjúin Unnar Sveinlaugsson og Zanda Kruze eru Seyðfirðingar vikunnar. Í síðustu viku var skorað á þau að koma með rétt frá heimalandi Zöndu, Lettlandi. Þau gefa okkur því hér uppskift af kartöflupönnukökum og skora svo á Ragnheiði Gunnarsdóttur, Röggu, að vera Seyðfirðingur næstu viku.
Birna og Guðni Seyðfirðingar vikunnar
fimmtudagur, 09 nóvember 2006
Að þessu sinni eru það Birna Pálsdóttir og Guðni Hjörtur Sigurðsson í Shellskálanum á Seyðisfirði sem eru Seyðfirðingar vikunnar. Þau gefa okkur hér uppskrift að kjúklingabringum í sólþurrkuðum tómötum og skora svo á Unnar Sveinlaugsson og Zanda Kruze. Birna og Guðni óska eftir uppskrift frá heimalandi hennar Zanda, Lettlandi.
Guðlaug Vala og Sigurður Seyðfirðingar vikunnar
Seyðfirðingar vikunnar að þessu sinni eru Guðlaug Vala Smáradóttir og Sigurður Grétarsson. Guðlaug Vala vinnur á Tækniminjasafni Austurlands og skoraði Pétur Kristjánsson forstöðumaður safnsins á Guðlaugu Völu í síðustu viku. Guðlaug Vala og Sigurður gefa okkur her uppskrift að ekta sunnudagskvöldmat, innbökuðum lambalundum og skora svo á Guðna Hjört Sigurðsson og Birnu S. Pálsdóttur að vera Seyðfirðingar næstu viku.
Pétur Kristjánsson Seyðfirðingur vikunnar
fimmtudagur, 26. október 2006
Seyðfirðingur vikunnar að þessu sinni er Pétur Kristjánsson forstöðumaður Tækniminjasafns Austurlands. Pétur gefur okkur hér dýrindis uppskrift að saltfiski og skorar svo á þau Guðlaugu Völu Smáradóttur og Sigurð Grétarsson að vera Seyðfirðingar næstu viku.
Birgir Andrésson Seyðfirðingur vikunnar
fimmtudagur, 19 október 2006
Seyðfirðingur vikunnar að þessu sinni er Birgir Andrésson, listamaður með meiru og eigandi Hóls á Vesturveginum. Birgir gefur okkur hér uppskrift að "Lifur a la Seyðisfjörður" og skorar svo á Pétur Kristjánsson að vera Seyðfirðingur næstu viku.
Þórunn og Helgi Seyðfirðingar vikunnar
fimmtudagur, 28 september 2006
Það eru þau Þórunn Eymundardóttir og Helgi Örn Pétursson sem eru Seyðfirðingar vikunnar að þessu sinni. Þau bjóða okkur hér upp á grænmetis-lasagne, frábært og fljótlegt brauð og að lokum fullkominn kvöldskatt. Þórunn og Helgi skora svo á Birgi Andrésson að vera Seyðfirðingur næstu viku.
Elfa Hlín Seyðfirðingur vikunnar
fimmtudagur, 14 september 2006
Seyðfirðingur vikunnar að þessu sinni er Elfa Hlín Pétursdóttir en Hlín Adolfsdóttir skoarði á hana í síðustu viku. Elfa Hlín gefur okkur hér uppskrift að marineruðum fiski með kaldri sósu og villibráðarpaté með sveppasósu. Hún skorar svo á þau Þórunni Eymundardóttur og Helga Örn Pétursson að vera Seyðfirðingar næstu viku.
Hlín Seyðfirðingur vikunnar
fimmtudagur, 07 september 2006
Seyðfirðingur vikunnar að þessu sinni er Hlín Adolfsdóttir
Hlín býður okkur upp á Svínalundir Lillu í aðalrétt og volga súkkulaðiköku í eftirrétt og skorar svo á stórvinkonu sína, Elfu Hlín Pétursdóttir að vera Seyðfirðingur næstu viku.
Maggý Seyðfirðingur vikunnar
fimmtudagur, 31 ágúst 2006
Að þessu sinni er Seyðfirðingur vikunnar Margrét Guðjónsdóttir, Maggý, en Kristín Klemensdóttir skoraði á hana í síðustu viku. Maggý gefur okkur hér uppskrift, eða slump eins og hún kallar það, að BBQ-balsamik-kjúlla-salati með doritos. Maggý skorar svo á frænku sína Hlín Adolfsdóttur að vera Seyðfirðingur næstu viku.
Kristín Klemensdóttir Seyðfirðingur vikunnar
föstudagur, 25 ágúst 2006
Að þessu sinni er Kristín Klemensdóttir Seyðfirðingur vikunnar og gefur hún okkur hér uppskrift af dásamlegri kjúklingasúpu og speltbrauði. Hún skorar svo á Margréti Guðjónsdóttur að vera Seyðfirðingur næstu viku. Hér eftir mun Seyðfirðingur vikunnar verða birtur á fimmtudögum.
Ólafía og Guðjón Seyðfirðingar vikunnar
föstudagur, 18 ágúst 2006
Að þessu sinni eru hjónin Ólafía Stefánsdóttir og Guðjón Már Jónsson Seyðfirðingar vikunnar og gefa þau okkur hér uppskrift af grilluðum laxi og bláberjaböku í eftirrétt. Þau skora svo á Kristínu Klemensdóttur að vera Seyðfirðingur næstu viku.
Ása Kristín Seyðfirðingur vikunnar
föstudagur, 11 ágúst 2006
Seyðfirðingur vikunnar að þessu sinni er Ása Kristín Árnadóttir sem býður upp girnilegt kjúklingasalat og döðlueftirrétt. Ása skorar svo á Guðjón Má Jónsson að vera Seyðfirðingur næstu viku
Lucinda Seyfirðingur vikunnar
föstudagur, 04 ágúst 2006
Seyðfirðingur vikunnar að þessu sinni er Lucinda Friðbjörnsdóttir sem býður upp á óvenjulega aðferð í fiskréttum, en engu að síður girnilega. Lucinda skorar svo á Ásu Kristínu Árnadóttur að vera Seyðfirðingur næstu viku.
Árni Geir Seyðfirðingur vikunnar
föstudagur, 21 júlí 2006
Seyðfirðingur vikunnar að þessu sinni er Árni Geir Lárusson sem gefur okkur hér uppskrift að Fylltri svínalund að spænskum hætti með sveppasósu. Árni Geir skorar svo á Lucindu Friðbjörnsdóttur að vera Seyðfirðingur næstu viku.
Böðvar Seyðfirðingur vikunnar
föstudagur, 14 júlí 2006
Seyðfirðingur vikunnar að þessu sinni er Böðvar Pétursson en morgunverðarmeistarinn Sveinbjörn Jónasson skoraði á Böðvar í síðustu viku. Böðvar gefur okkur hér uppskrift að "Svínapítu með sérstöku ívafi" og skorar svo á tónlistarsnillinginn Árna Geir Lárusson að vera Seyðfirðingur næstu viku. Gefum Böðvari orðið:
Sveinbjörn Seyðfirðingur vikunnar
fimmtudagur, 06 júlí 2006
Sveinbjörn Jónasson er Seyðfirðingur þessarar viku en hann tók við boltanum frá samherja sínum í Huginn Daníel Pálmasyni. Sveinbjörn er snöggur að skipta um boltategund og sendir bandýbolta á Böðvar Pétursson með áskorun um að vera Seyðfirðingur næstu viku.
Daníel Seyðfirðingur vikunnar
föstudagur, 30 júní 2006
Seyðfirðingur vikunnar að þessu sinni er Daníel Pálmason fótboltakappi með meiru. Ásamt því að spila fótbolta með Huginn í 2. deildinni í sumar vinnur Daníel hjá Sýslumanninum á Seyðisfirði og var það samstarfskona hans þar, Óla B. Magnússon sem skoraði á Daníel í síðustu viku. Nú sparkar Daníel boltanum til samherja síns hjá Huginn og skorar á Sveinbjörn Jónasson að vera Seyðfirðingur næstu viku.
Óla Seyðfirðingur vikunnar
föstudagur, 23 júní 2006
Seyðfirðingur vikunnar að þessu sinni er Óla B. Magnúsdóttir starfsmaður hjá Sýslumannsembættinu á Seyðisfirði en Lára Huld Guðjónsdóttir samstarfskona Ólu skoraði á hana í síðustu viku. Óla gefur okkur hér uppskrift af Sælkerafiski og í eftirrétt Kladdaköku Lellu. Óla skorar svo á samstarfsmann sinn, Daníel Pálmason fótboltasnilling, að vera Seyðfirðingur næstu viku.
Lára Huld Seyðfirðingur vikunnar
mánudagur, 19 júní 2006
Seyðfirðingur vikunnar að þessu sinni er Lára Huld Guðjónsdóttir, fulltrúi Sýslumannsins á Seyðisfirði. Beðist er velvirðingar á að það dróst að birta uppskirft Láru vegna tæknilegra örðugleika. Lára Huld gefur okkur hér uppskrift að tveimur uppáhalds fiskréttum, Bananaýsu og Grateneraðri ýsu með sýrðum rjóma og ostrusósu. Lára skorar svo á samstarfskonu sína á Sýsluskrifstofunni, Ólu B. Magnúsdóttur að vera Seyðfirðingur næstu viku.
Fríða Seyðfirðingur vikunnar
föstudagur, 09 júní 2006
Seyðfirðingur vikunnar þessa vikuna er Fríða Valdimarsdóttir. Hún gefur okkur hér girnilega uppskrift af kjúklingarétti með sólþurrkuðum tómötum. Fríða skorar svo á Láru Huld Guðjónsdóttur fulltrúa sýslumannsins á Seyðisfirði að vera Seyðfirðingur næstu viku.
Hulda Seyðfirðingur vikunnar
föstudagur, 02 júní 2006
Seyðfirðingur vikunnar að þessu sinni er Hulda Sveinsdóttir. Hrafnhildur Sigurðardóttir skoraði á Huldu í síðustu viku og kom boltanum þar með frá skólanum yfir á Sýsluskrifstofuna. Hulda gefur okkur hér uppskrift að góðum og fljótlegum kjúklingarétti og skorar á leið á Fríðu Valdimarsdóttur að vera Seyðfirðingur næstu viku.
Hrafnhildur Seyðfirðingur vikunnar
föstudagur, 26 maí 2006
Hrafnhildur Sigurðardóttir er Seyðfirðingur vikunnar að þessu sinni og hér gefur húln okkur uppskrift að pylsurétti sem er í uppáhaldi hjá fjölskyldunni. Hrafnhildur skorar svo á Huldu Sveinsdóttur að vera Seyðfirðingur næstu viku og er þar með búin að kasta boltanum frá skólanum yfir á Sýsluskrifstofuna.
Unnur Seyðfirðingur vikunnar
föstudagur, 19 maí 2006
Seyðfirðingur vikunnar að þessu sinni er Unnur Óskarsdóttir og bíður hún okkur upp á uppskrift að spennandi blaðlauksböku. Unnur skorar svo á Hrafnhildi Sigurðardóttir að bjóða okkur upp á eitthvað gott í næstu viku.
Ingibjörg og Óli Seyðfirðingar vikunnar
föstudagur, 12 maí 2006
Seyðfirðingar vikunnar að þessu sinni eru þau Ingibjörg og Óli, þau eru ekki í vandræðum með að svara áskoruninni eins og sjá má.
Kata og Skúli Seyðfirðingar vikunnar
föstudagur, 05 maí 2006
Það eru þau Kata og Skúli sem eru Seyðfirðingar vikunnar að þessu sinni, þau skora á Ingibjörgu og Óla að vera Seyðfirðingar næstu viku, en gefum Kötu orðið:
Vilhjálmur Jónsson Seyðfirðingur vikunnar
fimmtudagur, 27 apríl 2006
Seyðfirðingur vikunnar að þessu sinn er Vilhjálmur Jónsson frá Hánefsstöðum. Hann gefur okkur uppskrift að veislumáltíð sem kemur vatninu fram í munnin á vefstjóra bara við lesturinn. Villi skorar á þau Katrínu Reynisdóttur og Skúla Jónson að vera Seyðfirðingar næstu viku.
Haraldur Ragnar Seyðfirðingur vikunnar
föstudagur, 21 apríl 2006
Haraldur Ragnar með prímusinn og sérfæðingur í sjávarréttum er Seyðfirðingur vikunnar að þessu sinni, eða eins og hann segir sjálfur: Já þeir bræður Þorgeir og Sigurbergur skoruðu á mig og þá er bara að skora á einhvern og koma með uppskrift.
En Halli snýr þessu reyndar við og kemur með 3ja rétta uppskrift og síðan áskorun, gjörið svo vel.
Sigurbergur og Þorgeir Seyðfirðingar vikunnar
miðvikudagur, 12 apríl 2006
Bræðurnir Sigurbergur og Þorgeir Sigurðssynir eru Seyðfirðingar vikunnar að þessu sinni. Þeir bræður gefa okkur hér uppskrift að hrefnukjöti sem tilvalið er að prófa nú um hátíðirnar og skora svo á Harald Ragnar Aðalbjörnsson með prímusinn og sérfræðing í sjávarréttum að vera Seyðfirðingur næstu viku.
Hildigunnur og Bjarni Seyðfirðingar vikunnar
mánudagur, 03 apríl 2006
Vegna bilunar í hýsingu Seyðisfjarðarvefsins eru Seyðfirðingar vikunnar seint á ferðinni að þessu sinni. Það eru þau Hildigunnur og Bjarni í Skaftfelli sem ætla að gefa okkur uppskrift að þessu sinni. Um er að ræða ljúffengan lúðurétt í tilefni páskahátíðarinnar. Þau Hildigunnur og Bjarni skora svo á menningarbræðurna Þorgeir og Sigurberg að vera Seyðfirðingar næstu viku. En gefum Hildigunni og Bjarna orðið:
Ríkey og Dýri Seyðfirðingar vikunnar
föstudagur, 24 mars 2006
Að þessu sinni eru það Rikey Kristjánsdóttir og Dýri Jónsson sem eru Seyðfirðingar vikunnar. Þau gefa okkur hér uppskrift að indverskum kjúklingi og nanbrauði. Þau bjóða svo Bjarna og Hildigunni velkomin í bæinn með því að skora á þau að vera Seyðfirðingar næstu viku.
Óli og Rannveig Seyðfirðingar vikunnar
föstudagur, 17 mars 2006
Seyðfirðingar vikunnar að þessu sinni eru Ólafur Örn Pétursson og Rannveig Þórhallsdóttir. Þau gefa okkur hér uppskrift að gæsainnmatskæfu og brauði. Þau skora svo á kæra vini sína, Dýra og Ríkey að gefa okkur uppskrift í næstu viku.
Svava og Andri Seyðfirðingar vikunnar
föstudagur, 03 mars 2006
Svava Lárusdóttir og Andri Borgþórsson eru Seyðfirðingar vikunnar og gefa okkur hér uppskrift að ljúffengri fiskisúpa að hætti Andra og fylltu brauði að hætti Svövu. Þau skötuhjú skora svo á góða vini sína og félaga, óðalsbóndann í Garði og hans frú, Ólaf Silicone og Rannveigu Þórhallsdóttur að vera Seyðfirðingar næstu viku.
Díana og Johannes Seyðfirðingar vikunnar
föstudagur, 24 febrúar 2006
Í síðustu viku skoraði Þóra Guðmundsdóttir á Díönu Pálsdóttur og Johannes meistarakokk. Þau skoruðust að sjálfsögðu ekki undan þótt það hafi nú aðallega komið í hlut Díönu að deila með okkur uppskrift þar sem Johannes flúði til Reykjavíkur á Food & fun hátíðina. Díana töfraði fram uppskrift að girnilegu mexíkósku kjúklingalasagne og Johannes leggur í púkkið uppskrift að súkkulaðieftirrétt. Þau skora svo á Andra Borgþórsson og Svövu Lárusdóttur að vera Seyðfirðingar næstu viku. En gefum Díönu orðið:
Þóra Guðmundsdóttir Seyðfirðingur vikunnar
föstudagur, 17 febrúar 2006
Seyðfirðingur þessarar viku er Þóra Guðmundsdóttir. Þóra gefur okkur uppskrift að indverskum fiskrétti sem kallast "Fish Molly". Þóra segir að í Kerala þangað sem hún hverfur á veturna sé mikið framboð af fersku sjávarfangi. Allskyns furðufiskar eru í boði á stórkostlegum fiskmörkuðum sem eru nánast á hverju strái. Keralir matreiða fisk á margvíslegan hátt. Baka, steikja, grilla og sjóða. Einn er þó sá réttur sem segja má að sé jafn dæmigerður fyrir Kerala og kjötsúpan fyrir Íslendinga. Þetta er “Fish Molly”. Þóra segist ekki vita hvað molly þýðir og enginn sem hún hef spurt hefur getað svarað því, en uppskriftina segir Þóra góða og í hana má nota hvaða fisk sem er, þorsk, skötusel, lax, löngu, ýsu og fleiri. Fish molly er mildur réttur og fer vel í íslenska bragðlauka. Hver húsmóðir hefur þó sinn háttinn á mollýinu. Þóra bendir á að þau framandi hráefni sem eru í uppskriftinni megi panta hjá NINGS verslun - sælkerabúð. Þóra skorar svo á hjónaleysin Díönu Pálsdóttur og Johannes stórmeistara að leggja saman í eitthvað fjölþjóðlegt í næstu viku.
Tryggvi Seyðfirðingur vikunnar
föstudagur, 10 febrúar 2006
|
|
Tryggvi Harðarson er Seyðfirðingur vikunnar og gefur hér uppskrift að kjúklingarétti sem kallast, "Kínakjúlli a la Tiegui" en Tiegui mun vera kínverska nafn Tryggva sem hann hlaut á námsárum sínum í Kína og þýðir það "Járndjöfullinn". Tryggvi skorar á Þóru Guðmundsdóttur að vera Seyðfirðingur næstu viku og gefa uppskrift að einhverjum krassandi indverskum rétti. Það lýtur því út fyrir að það verði fjölþjóðlegar uppskriftir hér, byrjað á suðrænum saltfiski, farið í kínverskan kjúlla og þaðan yfir í indverskt!
|
Hvað borða Seyðfirðingar?
föstudagur, 03 febrúar 2006
Nú hefst hér á Seyðisfjarðarvefnum óformleg könnun á mataravenjum Seyðfirðinga. Ætlunin er að birta hér mataruppskriftir á hverjum föstudegi þar sem Seyðfirðingur vikunnar gefur okkur uppskrift og skorar svo á einhvern annan þannig að boltinn rúllar áfram. Vefstjóri ákvað að hefja leikinn með því að deila með öðrum uppskrift að góðum saltfiskrétti og skorar svo á Tryggva bæjarstjóra að koma með uppskrift í næstu viku og vonar jafnframt að það verði ekki uppskrift að hundakjötsrétti.
|