Get the Flash Player to see this player.
 
Forsíða arrow Stjórnsýsla arrow Fundargerðir arrow Atvinnu- og framtíðarmálanefnd arrow Atvinnu-og framtíðarmálaráð 01.12.09
Advertisement
Atvinnu-og framtíðarmálaráð 01.12.09 PDF Prenta Rafpóstur

11. fundur atvinnu- og framtíðarmálaráðs.

Þriðjudaginn 1. desember 2009 kl. 15.00 var haldinn fundur í atvinnu- og framtíðarmálaráði Seyðisfjarðar. Fundurinn var haldinn á skrifstofu bæjarins að Hafnargötu 44. Mætt: Katrín Reynisdóttir, Margrét Vera Knútsdóttir, Ólafur Örn Pétursson, Magnús Jónasson, Bragi Blumenstein og Daníel Björnsson starfsmaður nefndarinnar sem ritaði fundargerð. Einnig eru mættir á fundinn Bjarni Ellert Ísleifsson verkefnisstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands og Hafliði H. Hafliðason framkvæmdastjóri Þróunarfélags Austurlands.

Efni fundarins:

1. Formaður setti fund.
Formaður setti fund og bauð fundarmenn velkomna. Fór hún yfir markmið fundarins sem eru að virkja betur tengsl við þessar stofnanir, þ.e. Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Þróunarstofu Austurlands.

2. Kynning Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands og Þróunarstofu.
2.1. Starfsemi Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands (NMÍ).

Bjarni kynnti starfsemi NMÍ. Hann er eini starfsmaðurinn sem er staðsettur á austurlandi enn sem komið er en til stendur að bæta við einum til viðbótar. Fór yfir hvaða hlutverki hann hefur að gegna og hvernig hægt er að efla tengslin betur. NMÍ leiðbeinir t.d. við að finna styrki, lán o.s.frv.
2.2. Starfsemi Þróunarstofu Austurlands.
Hafliði kynnti starfsemi Þróunarstofunnar. Hjá Þróunarstofunni starfa fimm manns. Vinna náið saman með NMÍ og SSA. Vinna saman að sóknaráætlun og austurlandsáætlun með SSA.
2.3. Tengsl.
Rætt um með hvaða hætti mætti virkja betur tengingu nefndarinnar við þessar stofnanir.

3. Staða Seyðisfjarðar.
Rætt um að fara í greiningu á nokkrum þáttum í atvinnumálum sveitarfélagsins.

4. Atvinnurekendamessa.
Ákveðið að halda „atvinnurekendamessu“ þar sem ákveðnir aðilar eru kallaðir saman og reynt að koma hugmyndum í farveg. Daníel, Hafliði og Bjarni munu skipuleggja fundinn.

Fundi slitið kl. 16.30

Katrín Reynisdóttir (sign)
Margrét Vera Knútsdóttir (sign)
Magnús Jónasson (sign)
Ólafur Örn Pétursson (sign)
Bragi Blumeinstein (sign)
Daníel Björnsson (sign)

 

 
Mánudagur 6. september
 Úr myndasafni
Barnaskemmtun.
Ýmislegt
Aðalskipulag 2010-2030
Eyðublöð
Fjallagarpar Seyðisfjarðar
Gjaldskrár
Kosningar 2010
Laus störf
Myndir
Netfanga- og símaskrá
Póstlisti
Samþykkt um hunda- og kattahald
Seyðfirðingar vikunnar
Sorpflokkun
Tenglasafn
Útgefið efni
Veðrið á Austurlandi
Nýjustu fundargerðir
Viðburðir

Seyðisfjarðarkaupstaður - Hafnargötu 44 - 710 Seyðisfjörður - Sími 470 2300 - Fax 472 1588 - sfk@sfk.is - Kt. 560269-4559