Get the Flash Player to see this player.
 
Forsíða arrow Stjórnsýsla arrow Fundargerðir arrow Bæjaráð arrow Bæjarráð 06.01.10
Advertisement
Bæjarráð 06.01.10 PDF Prenta Rafpóstur

2126. fundur í bæjarráði Seyðisfjarðar.

Þann 06.01.10 kom bæjarráð Seyðisfjarðar saman til fundar á skrifstofu bæjarins að Hafnargötu 44.  Hófst fundurinn kl. 16.00.   Mætt:  Katrín Reynisdóttir, Ómar Bogason, Elfa Hlín Pétursdóttir, auk bæjarstjóra sem ritaði fundargerð.

Fundarefni:

1. Erindi sem borist hafa:
1.1.Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.  14.12.09.  Varðar: Framlag vegna nýbúafræðslu. Vísað til skólastjóra.
1.2. Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.  14.12.09. Varðar: Framlag vegna sérþarfa fatlaðra nem.  Vísað til skólastjóra.
1.3. Félags- og tryggingarmálaráðuneytið 15.12.09. Varðar:  Breytingar á grunnfjárhæð vegna fjárhagsaðstoðar.   Lagt fram til kynningar en vísað til þjónustufulltrúa.  Grunnfjárhæð fyrir Seyðisfjarðarkaupstað verði sú sama og ákveðin verður fyrir Fljótsdalshérað.
1.4. SSA 15.12.09.  Varðar:  Árgjöld aðildarsveitarfélag til SSA 2010.  Lagt fram til kynningar. 
1.5. Markaðsstofa Austurlands 22.12.09. Varðar: Samning um áframhaldandi samstarf um rekstur skrifstofunnar.  Bæjarstjóra falið að skrifa undir tímabundna framlengingu á þjónustusamningi eins og hann liggur fyrir fundinum.  Gildistími viðaukasamnings er frá 01.01.10 til 01.07.10.
1.6. Varasjóður húsnæðislána 09.12.09.  Varðar: Söluframlög sjóðsins.  Lagt fram til kynningar.
1.7. Vatnsborun ehf. 29.12.09.  Varðar: Tilboð í standsetningu á fallbyssu úr El Grilló.   Bæjarráð leggur á það áherslu að fullkannað verði hvort ekki sé hægt að vinna þetta verkefni hér á Seyðisfirði og halda þannig vinnunni í heimabyggð.  Bæjarstjóra falið að senda vélsmiðjum á staðnum og Tækniminjasafni Austurlands erindi og kanna áhuga þeirra á því að koma að þessu verkefni.  Bæjarráð telur mikilvægt að þessu verki verði komið í framkvæmd á næstunni og felur bæjarstjóra að kanna með fjármögnun á þessu verkefni.

2.  Samningur við Leikfélag Seyðisfjarðar um húsnæðisafnot.  Bæjarráð samþykkir samninginn og felur bæjarstjóra að undirrita hann.

3. Afrit bréfa frá bæjarstjóra.  Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við afgreiðslu viðkomandi mála. 

4. Önnur mál.
4.1.  Ólafur Örn Pétursson 05.01.10.  Varðar:  Ósk um kaup á húsarústum við Vestdalsá.   Bæjarráð samþykkir erindið með sömu skilmálum og í undirbúningi er við hópinn sem ætlar að endurbyggja „Guðnahús“  Bæjarráð setur sem skilyrði að endurbygging hússins verði í samráði við Húsafriðunarnefnd ríkisins.   Undir þessum dagskrárlið vék Elfa Hlín Pétursdóttir af fundi vegna vanhæfis.
4.2.  Þjónustufulltrúi 05.01.10.  Varðar: Hamrabakka 8-12 ( félagslegt húsnæði).  Lagt fram til kynningar.   Bæjarráð óskar því við bæjarstjóra og þjónustufulltrúa að fullmóta tillögur í málinu og leggja fyrir næsta fund.

Fleira ekki tekið fyrir og fundi slitið kl.  17.11

Katrín Reynisdóttir (sign)
Ómar Bogason (sign)
Elfa Hlín Pétursdóttir (sign)
Ólafur Hr. Sigurðsson (sign)

 

 
Mánudagur 6. september
 Úr myndasafni
Atli Gunnar Guðmundsson veiddur!!!
Ýmislegt
Aðalskipulag 2010-2030
Eyðublöð
Fjallagarpar Seyðisfjarðar
Gjaldskrár
Kosningar 2010
Laus störf
Myndir
Netfanga- og símaskrá
Póstlisti
Samþykkt um hunda- og kattahald
Seyðfirðingar vikunnar
Sorpflokkun
Tenglasafn
Útgefið efni
Veðrið á Austurlandi
Nýjustu fundargerðir
Viðburðir

Seyðisfjarðarkaupstaður - Hafnargötu 44 - 710 Seyðisfjörður - Sími 470 2300 - Fax 472 1588 - sfk@sfk.is - Kt. 560269-4559