|
2127. fundur í bæjarráði Seyðisfjarðar.
Þann 13.01.10 kom bæjarráð Seyðisfjarðar saman til fundar á skrifstofu bæjarins að Hafnargötu 44. Hófst fundurinn kl. 16.00. Mætt: Katrín Reynisdóttir, Ómar Bogason, Margrét Vera Knútsdóttir, auk bæjarstjóra sem ritaði fundargerð.
Fundarefni:
1. Fundargerðir nefnda
1.1. Bæjarráðs frá 06.01.10. Fundargerðin samþykkt.
2. Erindi sem borist hafa.
2.1. Þjónustufulltrúi. Dagskrárliður 4.2. sem frestað á síðasta fundi. Bæjarráð samþykkir framlagðar tillögur að breytingum í félagslegu íbúðakerfi Seyðisfjarðarkaupstaðar. Bæjarstjóra og þjónustufulltrúa falið að koma breytingunum í framkvæmd.
2.2. Umhverfisstofnun 05.01.10. Vegna: Reifaveiða. Fram kemur í bréfinu að ríkið ætli áfram að niðurgreiða refaveiðar í landinu, þrátt fyrir fyrri yfirlýsingar. Bæjarráð fagnar þessari stefnubreytingu ríkisins.
3. Afgreiðsla bæjarstjóra á ýmsum málum. Lögð fram afrit bréfa. Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við afgreiðslu bæjarstjóra.
4. Aðalskipulag. Farið yfir kort og umsagnir.
Umsagnir hafa borist frá eftirtöldum aðilum:
• Veðurstofu Íslands
• Skógrækt ríkisins.
• Heilbrigðiseftirliti Austurlands.
• Vegagerð ríkisins.
• Siglingastofnun Íslands.
• Flugstoðum.
Bæjarráð fór yfir athugasemdirnar og samþykkir að vísa þeim til umhverfismálaráðs til frekari skoðunar.
5. Önnur mál.
Fleira ekki tekið fyrir og fundi slitið kl. 16.40.
Katrín Reynisdóttir (sign)
Ómar Bogason (sign)
Margrét Vera Knútsdóttir (sign)
Ólafur Hr. Sigurðsson (sign)
|