|
2128. fundur í bæjarráði Seyðisfjarðar.
Þann 27.01.10 kom bæjarráð Seyðisfjarðar saman til fundar á skrifstofu bæjarins að Hafnargötu 44. Hófst fundurinn kl. 16.00. Mætt: Katrín Reynisdóttir, Ómar Bogason og Margrét Vera Knútsdóttir, auk bæjarstjóra sem ritaði fundargerð.
Fundarefni:
1. Erindi sem borist hafa:
1.1. Jafnréttisstofa 14.01.10. Varðar: Ítrekun á beiðni á upplýsingum vegna jafnréttismála. Fram kom í máli bæjarstjóra að Jafnréttisstofa hefði verið upplýst um stöðu mála. Bæjarstjóra ásamt þjónustufulltrúa falið að vinna málið áfram og gera tillögur að framtíðarskipan þessara mála hjá Seyðisfjarðarkaupstað.
1.2. Matvælastofnun. Tölvupóstur frá 15.01.10. Varðar: Smölun. Jafnframt lagt fram afrit af bréfi til Borgarfjarðarhrepps vegna sama máls. Bæjarstjóri upplýsti að í gær hefði farið fram þriðja smölun í Loðmundarfirði. Rúmlega eitt hundrað fjár náðust í þessari smölun.
1.3. Fljótsdalshérað 21.01.10. Varðar: Umsögn um aðalskipulag Seyðisfjarðar. Umsögn vísað áfram til umhverfismálaráðs.
1.4. UÍA 21.01.10. Varðar: Stuðning við íþróttafélög á sambandssvæðinu. Bæjarstjóra falið að svara erindinu.
2. Gatnaframkvæmdir. Lögð fram kostnaðaráætlun vegna endurbyggingar á Baugsvegi. Gatan hefur nú verið full hönnuð og kostnaðaráætlun liggur fyrir. Að svo stöddu er ekki tekin afstaða til þess hvort ráðist verður í þetta brýna verkefni á árinu.
3. Sorpmál. Staða urðunarmála. Bæjarstjóri fór yfir fund sem fram fór á Reyðarfirði í gær um stöðu urðunarmála. Fram kom á fundinum að Fjarðarbyggð hefur alfarið hafnað frekara samstarfi á þessu sviði og standi við fyrri ákvörðun sína um að urða rusl fyrir Fljótsdalshérað, Fljótsdalshrepp og Seyðisfjörð út febrúar 2010. Bæjarráð lýsir yfir miklum vonbrigðum sínum með þessa afstöðu bæjarráðs Fjarðarbyggðar enda engar tölulegar upplýsingar lagðar fram sem skýri ákvörðun Fjarðabyggðar. Bæjarráði Seyðisfjarðar finnst þetta slæmt veganesti inní þá miklu vinnu sem er nú að hefjast og snýr að skoðun á stóraukinni samvinnu sveitarfélaga á Austurlandi. Bæjarstjóra falið að vinna með Fljótsdalshéraði og Fljótsdalshreppi að lausn þeirrar alvarlegu stöðu sem þessi mál eru komin í. Þá var farið yfir fyrstu drög að teikningum að sorpmóttökusvæði við Austfarshúsið. Bæjarráð lýsir yfir ánægju sinni með drögin en þau eru nú í rýningu hjá nokkrum aðilum.
4. Málefni Héraðsskjalasafns Austurlands. Farið yfir fundargerð stjórnar Héraðsskjalasafnsins frá 26.11.09. Bæjarráð Seyðisfjarðar lýsir yfir ánægju sinni með „Drög að reglum“ um bókasafn Halldórs Ásgrímssonar og Önnu Guðnýjar Guðmundsdóttur. Sérstaka ánægju vekur að sjá löngu tímabæra tengingu á milli árlegra rekstrarframlaga sveitarfélaganna og tekna bókasafnsins.
5. El Grilló. Standsetning á fallbyssu. Svarbréf hafa borist frá þeim aðilum sem leitað var til hér á staðnum. Bæjarstjóra falið að kalla saman aðila og fara yfir málið og skila greinargerð til bæjarráðs vegna þessa að fundi loknum.
6. Rúv. Umræða um stöðu mála vegna uppsagna á starfsmönnum Rúv á Austurlandi.
Bæjarráð Seyðisfjarðar harmar þá óskiljanlegu ákvörðun yfirstjórnar RÚV að leggja niður starfsstöðvar svæðisútvarpa þeirra landshlutastöðva, sem nú hefur verið tilkynnt um. Sú lágmarksþjónusta, sem boðuð hefur verið, er algjörlega óásættanleg og ber vott um mikið metnaðarleysi „Útvarps allra landsmanna“, sem öllum íbúum landsins er gjört að greiða nefskatt til.
Fyrir liggur að svæðisútvarpsstöðvarnar hafa haft verulegar tekjur af auglýsingastarfsemi, þar sem fyrirtæki og einstaklingar á landsbyggðinni hafa nýtt sér þennan miðil í verulegum mæli. Þeim tekjum er nú kastað á glæ að stórum hluta.
Svæðisútvörp hafa aukið á samkennd íbúa fjórðunganna, en jafnframt verið miðlar, sem fjallað hafa um mismunandi áherslur milli svæða og opnað á umræðu um fjölmörg hagsmunamál íbúanna. Umfram allt hefur þar verið fjallað um hið fjölbreytta og jákvæða starf, sem unnið er í öllum fjórðungum og sýnileiki byggðarlaganna verið meiri en ella fyrir vikið. Bæjarráð Seyðisfjarðar skorar á útvarpsstjóra og yfirstjórn Rúv að endurskoða ákvörðun sína enda þegar búið að ráðast hér í umtalsverðar rekstararhagræðingar hjá Rúv á Austurlandi sem fram komu á síðasta ári. Bæjarráði finnst einsýnt að það hljóti að megi finna aðrar sparnaðarleiðir en þessar. Til að mynda væri upplagt að stytta útsendingartíma bæði hljóðvarps og sjónvarps og spara útsendingar á þeim tímum sólarhringsins sem stærstur hluti þjóðarinnar notar í svefn.
7. Önnur mál
7.1. Fjarðaraldan ehf. Lögð fram til kynningar fundargerð hluthafafundar frá 25.01.10. Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti þær tillögur sem þar koma fram. Í fundargerðinni kemur fram að aðalfundur verði boðaður þann 18.02.10.
Bæjarráð samþykkir að Vilhjálmur Jónsson verði fulltrúi kaupstaðarins á fundinum.
Fleira ekki tekið fyrir og fundi slitið kl. 17.15.
Katrín Reynisdóttir (sign)
Ómar Bogason (sign)
Margrét Vera Knútsdóttir (sign)
Ólafur Hr. Sigurðsson (sign)
|