|
Miðvikudagur, 03 Febrúar 2010 |
|
Krísa er leikhópur 12–16 ára unglinga. Þessi hópur var stofnaður í tengslum við verkefnið „Þjóðleik“. Markmið Þjóðleiks er að starfrækja unglingaleikhópa og fá alvöru verk skrifuð fyrir þennan hóp. Þjóðleikur stóð meðal annars fyrir stærstu leiklistarhátíð sem haldin hefur verið á Íslandi. Þessi hátíð fór fram á Egilsstöðum í apríl 2009 þar sem unglinga-leikhópurinn Krísa sýndi leikverkið „Ísvélin“ eftir Bjarna Jónsson og gerði það af stakri prýði. Þrátt fyrir að ekki verði leiklistarhátíð á vegum Þjóðleiks þetta árið var ákveðið að starfrækja áfram unglingaleikhóp hér í bænum. Verkið sem varð fyrir valinu var Galdrakarlinn í Oz, í leikgerð Ármanns Guðmundssonar. Undanfarnar vikur hafa krakkarnir unnið hörðum höndum að uppsetningunni og er nú komið að því að sýna afrakstur þeirrar vinnu. Frumsýnt verður í Herðubreið laugardaginn 6. febrúar kl. 16:00.
F.h. Krísu, Eydís Bára Jóhannsdóttir og Snorri Emilsson
|