|
Fimmtudagur, 04 Febrúar 2010 |
|
Þann 6. febrúar næst komandi er dagur leikskólans. Þann dag árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara fyrstu samtök sín. Þetta er þriðja árið í röð sem leikskólar halda daginn hátíðlegan. Daginn ber að þessu sinni upp á laugardag og því verður hann haldinn hátíðlegur á morgun, föstudaginn 5. febrúar. Þann dag ætla börn og starfsfólk að byrja daginn á því að bjóða foreldrum í morgunverðarhlaðborð milli klukkan 07:45 og 09:30 áður en haldið er í vinnuna. Í hádeginu þann sama dag ætla börn og starfsfólk að eiga góða stund saman og blóta þorra. Leikskólakennarar eru sammála um að dagurinn sé í alla staði skemmtileg tilbreyting og ákjósanleg leið til að halda á lofti góðu starfi leikskólans.
|