|
2129. fundur í bæjarráði Seyðisfjarðar.
Þann 03.02.10 kemur bæjarráð Seyðisfjarðar saman til fundar á skrifstofu bæjarins að Hafnargötu 44. Hefst fundurinn kl. 16.00. Mættir: Ómar Bogason, Katrín Reynisdóttir, Margét Vera Knútsdóttir, auk bæjarstjóra sem ritaði fundargerð.
Fundarefni:
1. Fundargerðir nefnda:
1.1 Bæjarráðs frá 27.01.10. Fundargerðin samþykkt.
2. Erindisbréf nefnda: Farið yfir tillögur að nýjum og endurskoðuðum erindisbréfum nefnda og ráða hjá Seyðisfjarðarkaupstað. Ákveðið að senda tillögurnar til viðkomandi fagnefnda til umsagnar.
3. Bæjarmálasamþykkt Seyðisfjarðar: Farið yfir breytingar á samþykktinni. Bæjarráð hefur samþykktina áfram til skoðunar.
4. Reglur um mannaráðningar. Farið yfir málið og skoðað hvernig sé skynsamlegast að breyta núverandi reglum, en bæjarráðsmenn eru sammála um að rétt sé að breyta þeim. Frestað til næsta fundar.
5. Erindi sem borist hafa.
5.1. Fjarðabyggð 20.01.10. Varðar: Samstarf um sorpmál. Bæjarráð hefur ekkert við málið að bæta umfram bókun á síðast fundi um sama mál. Bæjarstjóra falið að vinna málið áfram enda ljóst að upp er komin gríðarlega erfið staða í urðunarmálum.
5.2. Skúli Jónsson f.h. Meistaraflokks karla 02.02.10. Umræða um málið en bæjarstjóri hefur þegar svarað erindinu.
5.3. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið 31.01.10. Varðar: Byggðakvóta 2009/2010. Bæjarráð fagnar því að byggðakvóti skuli aukast á milli ára úr 26 tonnum í 62 tonn. Bæjarstjóra falið að vinna að skoðun á því hvort breyta eigi sérstökum skilyrðum varðandi úthlutun byggðakvóta sveitarfélagsins. Málinu frestað þar til síðar.
Fleira ekki tekið fyrir og fundi slitið kl. 18.05.
Katrín Reynisdóttir (sign)
Ómar Bogason (sign)
Margrét Vera Knútsdóttir (sign)
Ólafur Hr. Sigurðsson (sign)
|