|
Föstudagur, 05 Febrúar 2010 |
|
Vefsíðustjóri hefur verið svo heppin að fá í hendur fullan disk af dásamlegum gömlum ljósmyndum. Myndarnar koma úr ýmsum áttum og eru meðal annars frá Ingibjörgu Nielsen, Pálínu Waage, Einari Sigurgeirssyni, Vilbergi Sveinbjörnssyni, Sólveigu Sigurðardóttur og Rúnari Eiríkssyni og Haraldi Má Sigurðssyni. Næstu föstudaga verður því eins konar myndaþema hér á síðunni, þar sem nokkrar gamlar myndir frá hinum og þessum viðburðum munu verða birtar. Endilega fylgist með þessu, því margt skemmtilegt mun bera á góma. Í dag, föstudaginn 5. febrúar, eru það myndir frá leikritinu Síldin kemur og síldin fer sem sett var upp og sýnt árið 1987. Fleiri myndir má sjá í albúmi. Vefsíðustjóri vill einnig nota tækifærið hér og þakka Sólveigu Sigurðardóttur kærlega fyrir hjálpina við koma þessu spennandi verkefni í framkvæmd.
|