|
Fundur í Hafnarmálaráði Seyðisfjarðar.
Fundur var haldinn í Hafnarmálaráð Seyðisfjarðar miðvikudaginn 3. mars 2010. Fór fundurinn fram á skrifstofu bæjarins að Hafnargötu 44. Hófst fundurinn kl. 08.00. Mætt voru: Adolf Guðmundsson, Sveinbjörn Orri Jóhannsson og Elfa Hlín Pétursdóttir, auk hafnarstjóra sem ritaði fundargerðina.
Fundargerðin var færð í tölvu.
Fundarefni:
1. Erindisbréf Hafnarmálaráðs. Erindisbréfið samþykkt með lítilsháttar breytingum.
2. Hafnarsambandið. Staða nokkurra mála sem sambandið hefur verið að vinna að sem snýr m.a. að vigtun sjávarafla. Umræða um stöðu mála en ekkert bókað.
3. Staða framkvæmda. Farið yfir stöðu framkvæmda. Útboð á Fiskvinnslubryggju hefur ekki enn verið samþykkt enda þótt að efni sé komið í hana. Aðrar framkvæmdir eru á teikniborðinu og verða lagðar fyrir ráðið strax og kostnaðaráætlanir liggja fyrir.
4. Verndarmál. Nýtt áhættumat og breytingar á Verndaráætlun. Hafnarstjóri skýrði stöðuna fyrir ráðinu. Vinnan er komin vel á veg.
5. Starfsmannamál. Umræða um afleysingarmál á höfninni. Samþykkt að senda 2-3 menn á verndarnámskeið hjá Siglingastofnun sem haldið verður dagana 23.-26. mars n.k.
6. Önnur mál.
6.1. Fundargerð nr. 326. Frá Hafnarsambandi Íslands. Fundargerðin lögð fram til kynningar.
Fleira ekki tekið fyrir og fundi slitið kl. 10.00
Adolf Guðmundsson (sign)
Sveinbjörn Orri Jóhannsson (sign)
Elfa Hlín Pétursdóttir (sign)
Ólafur Hr. Sigurðsson (sign)
|