Get the Flash Player to see this player.
 
Forsíða arrow Stjórnsýsla arrow Fundargerðir arrow Fræðslunefnd arrow Fræðslumálaráð 16.02.10
Advertisement
Fræðslumálaráð 16.02.10 PDF Prenta Rafpóstur

Fræðslumálaráð Seyðisfjarðar

Boðað til fundar þriðjudaginn 16. febrúar 2010 – haldinn á bæjarskrifstofunni kl. 16:15.  Mættir voru:  Elfa Rúnarsdóttir, Jón Halldór Guðmundsson, Stefán Smári Magnússon, Birna Guðmundsdóttir, Margrét Urður Snorradóttir og Eva Björk Jónudóttir sem ritaði fundargerð.

Vegna liðar 1 voru mættir:  Þorsteinn Arason skólastjóri, Jóhanna Gísladóttir aðstoðarskólastjóri, Eydís Bára Jóhannsdóttir fh. kennara og Berglind Sigurðardóttir fh. foreldra.

Vegna liðar 2 voru mættir: Þorsteinn Arason skólastjóri, Anna Guðbjörg Sigmarsdóttir fh. starfsmanna og Svava Lárusdóttir fh. foreldra.

Dagskrá:
1) Seyðisfjarðarskóli, framkvæmdir sumar 2010 og ýmislegt úr skólastarfinu.
2) Leikskólinn Sólvellir, sumarlokun 2010 og ýmislegt úr skólastarfinu.
3) Önnur mál

1. Seyðisfjarðarskóli – framkvæmdir sumar 2010 og ýmislegt úr skólastarfinu.
* Formleg ósk frá skólastjórnendum til fræðslumálaráðs um að fá grafið í kringum kjallarann í Gamla skóla í sumar, drena í kringum allt húsið og þétta grunninn og skipta um öll gólfefni í kjallara.

* Þurrablót í lok janúar sem heppnaðist vel, þó fámennara en oft áður sökum fækkunar nemenda.  Þarf e.t.v. að endurskoða þurrablót m.t.t. þessarar fækkunar í nemendahópi næsta ár.  Leikhópurinn Krísa kemur í beinu framhaldi af þurrablóti. Þjóðleikur verður aftur á dagskrá næsta ár, spurning hvort Krísa muni taka þátt að ári.  Mikið um að vera á þessum tíma í félagslífi eldri bekkja skólans.
* Jóhann Breiðfjörð var með námskeið í síðustu viku fyrir alla nemendur í 1.-6. bekk skólans.  Námskeiðið gekk út á kubba og nýsköpun.  
* Tekið var þátt í Sam-Aust (Söngkeppni Austurlands) í síðustu viku.  Fimm stelpur tóku þátt saman og stóðu sig vel.
* Öskudagur – dagskrá í íþróttahúsi á morgun frá klukkan 10-12.  Nemendur fá frí klukkan 13.
* Vetrarfrí um næstu helgi (fös+mán) og starfsdagur kennara (þri).  Kennarar hafa unnið af sér starfsdag og eru því allir, nemendur og kennarar, í 5 daga fríi um næstu helgi.  Kennarar unnu af sér daginn með því að vinna m.a. með Olweusaráætlun og voru einnig á fyrirlestri um lestrarkennslu.
* Olweusarvinnan í skólanum gengur ágætlega.  Beðið er eftir niðurstöðum úr könnun sem lögð var fyrir nemendur, þær niðurstöður verða kynntar fyrir foreldrum þegar þær berast.  Fræðslumálaráði kynnt eineltisáætlun skólans.
* Unnið í því að fá Kára Gunnlaugsson til að kenna nemendum að búa til stuttmyndir.  Það verkefni verður unnið í samvinnu við félagsmiðstöðina.
 
2. Leikskólinn Sólvellir – sumarlokun 2010 og ýmislegt úr skólastarfinu.

* Erindi borið upp um nýja sumarfríslokun.  Lokað verði í fjórar vikur í sumar (13.7-10.8).  Fimmta vikan verður geymd og notuð í haust-og vetrarfrí á sama tíma og skólinn fer í frí.  Þessi tillaga var einnig kynnt Fræðslumálaráði fyrir jól og kemur fram í fundargerð frá 7. desember.  Fræðslumálaráð er hlynnt þessari breytingu.
* Lilja Finnbogadóttir hefur sagt upp störfum.  Sandra Rut Skúladóttir var ráðin inn tímabundið í 100% starf, út apríl.
* Dagur leikskólans var haldinn hátíðlegur föstudaginn 5. febrúar sl. m.þ.a. að bjóða foreldrum í morgunmat og síðar sama dag var haldið þorrablót með börnunum.
* Öskudagsball verður haldið fyrir hádegi á morgun, öskudag, hjá börnunum.  
* Áætlað er að senda út spurningalista á næstunni til foreldra um leið og ný sumarfríslokun verður kynnt.
* Starfsdagar eru framundan.  Starfsmenn munu nýta þessa starfsdaga til að fara á skyndihjálparnámskeið. 

3. Önnur mál
Farið yfir erindisbréf nefnda.  Fræðslumálaráð er sátt við breytingar þessara erindisbréfa, en leggur til orðalagsbreytingar á nokkrum liðum.

Fundi slitið klukkan 18.54

Elfa Rúnarsdóttir (sign)
Birna Guðmundsdóttir (sign)
Stefán Smári Magnússon (sign)
Jón Halldór Guðmundsson (sign)
Margét Urður Snorradóttir (sign)
Eva Björk Jónudóttir (sign)

 

 
Laugardagur 11. september
 Úr myndasafni
Sjómannadagurinn, 5. júní 2010.
Ýmislegt
Aðalskipulag 2010-2030
Eyðublöð
Fjallagarpar Seyðisfjarðar
Gjaldskrár
Kosningar 2010
Laus störf
Myndir
Netfanga- og símaskrá
Póstlisti
Samþykkt um hunda- og kattahald
Seyðfirðingar vikunnar
Sorpflokkun
Tenglasafn
Útgefið efni
Veðrið á Austurlandi
Nýjustu fundargerðir
Viðburðir

Seyðisfjarðarkaupstaður - Hafnargötu 44 - 710 Seyðisfjörður - Sími 470 2300 - Fax 472 1588 - sfk@sfk.is - Kt. 560269-4559