Get the Flash Player to see this player.
 
Forsíða arrow Stjórnsýsla arrow Fundargerðir arrow Ferða- og menningarnefnd arrow Ferða- og menningarmálanefnd 17.02.10
Advertisement
Ferða- og menningarmálanefnd 17.02.10 PDF Prenta Rafpóstur

Ferða- og menningarmálanefnd, fundur 17. febrúar, allir aðalmenn boðaðir utan að varamaður var boðaður fyrir hönd Heimis Jóhannssonar sem fluttur er úr bænum, Auður Brynjarsdóttir boðaði forföll með stuttum fyrirvara, ekki tókst að boða varamann í hennar stað. Mættir eru: Aðalheiður Borgþórsdóttir, Elfa Hlín Pétursdóttir, Þórunn Eymundardóttir, Klas Paulsen og Guðjón Harðarson.

Dagskrá:
1. Staða verkefna, framkvæmd og fjármögnun – Aðalheiður kynnir helstu verkefni.
a. Tjaldstæðismál
b. Fyrirhugað umhverfisátak
c. Menningarviðburðir 2010
d. Markaðsátak og þróun Vetrarferðaþjónustu
e. Skemmtiferðaskipamál
2. Erindisbréf Ferða- og menningarnefndar Seyðisfjarðar, safnamál þ.m.t. bókasafn er komið inn í hlutverk nefndarinnar.
3. Önnur mál

Fundargerð:
1.a. Tjaldstæðismál.
Teikningar lagðar fram. Fyrirhugað að framkvæmdum verði lokið um miðjan maí. Fyrirhugað er að auglýsa eftir starfsmanni.
1.b. Umhverfisátak.  Lögð fram til kynningar Fjármagns- og framkvæmdaáætlun um Umhverfisátak vegna ferðaþjónustu í Seyðisfirði fyrir 2010 – 2012 sem Aðalheiður vann í góðu samráði við bæjarstjóra, byggingarfulltrúa og byggingarverkstjóra. Sótt var um í ýmsa sjóði t.d. til EBÍ, Alcoa og umhverfissjóðs Ferðamálastofu.
1.c. Menningarviðburðir 2010.  Margt fyrirhugað að vanda, Lunga verður tíu ára og verður ýmislegt gert í tilefni þess, dagskrá fyrir Bláu kirkjuna er mótuð, Aðalheiði falið að kanna hvernig umsýslu vegna Á Seyði verði háttað á þessu ári, hvort sami háttur og var í fyrra og nefndin er sammála um að vel hafi til tekist.
1.d. Markaðsátak og þróun vetrarferðaþjónustu.  Þróunarvinna í gangi varðandi vetrar-ferðaþjónustuna, Ólafur Örn Pétursson og Árný Bergsdóttir stýra þeirri vinna. Fyrirhugað er markaðsátak sem grundvallast á úthlutun NorðAusturnefndar sem sett var á laggirnar 2008. Þeim fjármunum er stýrt í gegnum Nýsköpunarmiðstöð Íslands sem síðan er úthlutað samkvæmt verklagsreglum Nýsköpunarmiðstöðvar. Þær reglur virðast vægast sagt vera til þess fallnar að bremsa af verkefnið.
1.6. Skemmtiferðaskipamál.  Tíu skipakomur eru bókaðar fyrir næsta sumar með um 5.500 farþegum. Nú þegar er búið að bóka fjórar komur fyrir 2011. Fjörugar umræður um þessi mál og nauðsyn þess að styrkja innviði þjónustunnar.

2. Erindisbréf nefndarinnar.  Rætt var um drög að nýju erindisbréfi og minnisblað verður sent bæjarstjóra með athugasemdum nefndarinnar.

3. Önnur mál
Engin önnur mál.

 

 
Laugardagur 11. september
 Úr myndasafni
Sjómannadagurinn, 5. júní 2010.
Ýmislegt
Aðalskipulag 2010-2030
Eyðublöð
Fjallagarpar Seyðisfjarðar
Gjaldskrár
Kosningar 2010
Laus störf
Myndir
Netfanga- og símaskrá
Póstlisti
Samþykkt um hunda- og kattahald
Seyðfirðingar vikunnar
Sorpflokkun
Tenglasafn
Útgefið efni
Veðrið á Austurlandi
Nýjustu fundargerðir
Viðburðir

Seyðisfjarðarkaupstaður - Hafnargötu 44 - 710 Seyðisfjörður - Sími 470 2300 - Fax 472 1588 - sfk@sfk.is - Kt. 560269-4559