Get the Flash Player to see this player.
 
Forsíða arrow Stjórnsýsla arrow Fundargerðir arrow Bæjaráð arrow Bæjarráð 03.03.10
Advertisement
Bæjarráð 03.03.10 PDF Prenta Rafpóstur

2131. fundur í bæjarráði Seyðisfjarðar.

Þann  03.03.10 kom bæjarráð Seyðisfjarðar saman til fundar á skrifstofu bæjarins að Hafnargötu 44.  Hófst fundurinn kl. 16.00.   Mætt:  Katrín Reynisdóttir, Ómar Bogason, Margrét Vera Knútsdóttir, auk bæjarstjóra sem ritaði fundargerð.

Fundarefni:

1.  Fundargerðir nefnda:
1.1. Fræðslumálaráðs frá 16.02.10. Varðandi lið 1. Bæjarstjóra falið að láta gera kostnaðaráætlun á „afvötnun“ á kjallara gamla skóla og ný gólfefni í kjallarann. Bæjarráð lýsir yfir ánægju sinni með fjölbreytt starf skólans sem m.a. kemur fram í þessari fundargerð.
1.2. Ferða- og menningarmálanefndar frá 17. 02.10.  Fundargerðin samþykkt.
1.3. Atvinnumálanefndar frá 11. 02.10.  Fundargerðin var tekin fyrir á fundi bæjarstjórnar þann 17.02.10,  en lið 2.  í  fundargerðinni er beint til bæjarráðs og þarf því að taka til umfjöllunar í ráðinu.  Talsverð umræða um málið og línur skýrðar.

2. Erindi sem borist hafa:
2.1. Gunnar Gunnarsson 12.02.10.  Varðar:  Ránargötu 4.  Samþykkt  að ganga til samninga við Gunnar um húsið í samræmi við þær hugmyndir sem fram koma í bréfinu.   Málið aftur á dagskrá þegar drög að samningi liggja fyrir.
2.2. Skipulagsstofnun 16.02.10.  Varðar: Aðalskipulag Seyðisfjarðarkaupstaðar 2010-2013.  Vísað til byggingarfulltrúa og umhverfismálaráðs.
2.3. Skipulagsstofnun 23.02.10.  Varðar: Kynningar skipulagstillagna.  Vísað til umhverfismálaráðs.
2.4. Fjarðabyggð 25.02.10. Varðar:  Samstarf í sorp- og skíðamálum.  Bæjarráð fagnar því að opnað er aftur á samstarf í báðum þessum málum.  Bæjarstjóra falið að vinna áfram að samvinnu í sorpurðunarmálum.  Þar til nefnd sem vinnur að því að skoða kosti í urðunarmálum miðsvæðis Austurlands hefur skilað af sér munu hins vegar sveitarfélögin þrjú Seyðisfjarðarkaupstaður, Fljótsdalshérað  og Fljótsdalshreppur nota urðunarstað Breiðdælinga enda hafa verið gerðir tímabundnir samningar þar að lútandi.  Bæjarráð Seyðisfjarðar leggur á það þunga áherslu að fyrrgreind nefnd sveitarfélaganna ljúki störfum sem fyrst, þannig að hægt sé að ganga frá langtímalausn þessara mála.

3.  Starfsmannamál á bókasafni.   Kolbrún Pétursdóttir forstöðumaður safnsins hefur sagt upp 30% stöðu sinni við safnið frá og með 1. júní 2010.   Bæjarráð þakkar Kolbrúnu vel unnin störf sem forstöðumaður bókasafnsins.  Bæjarstjóra falið að skoða möguleika í stöðunni og skila tillögu fyrir næsta fund bæjarráðs.

4.  Staða samvinnumála.  Bæjarstjóri fór yfir stöðuna í þeim tveimur nefndum sem hann á sæti í vegna samvinnumála.  Jafnframt fór hann yfir umræðu á síðasta fundi stjórnar SSA og dagsetningu aukaaðalfundar SSA 2010.  Fundurinn er fyrirhugaður þann 19.  apríl.

5. Önnur mál.
5.1. Afrit af bréfi frá MAST.  Lagt fram til kynningar.
5.2. Bæjarstjórnarkosningar.  Bæjarráð samþykkir að væntanlegum framboðum standi til boða að nota fundaraðstöðu í íþróttamiðstöðinni í samráði við forstöðumann.  Notkun er án endurgjalds.

Fleira ekki tekið fyrir og fundi slitið kl. 17.15.

Katrín Reynisdóttir (sign)
Ómar Bogason (sign)
Margrét Vera Knútsdóttir (sign)
Ólafur Hr. Sigurðsson (sign)

 

 
Laugardagur 11. september
 Úr myndasafni
Svipmyndir frá vinnu við fráveitu og byggingu leikskóla
Ýmislegt
Aðalskipulag 2010-2030
Eyðublöð
Fjallagarpar Seyðisfjarðar
Gjaldskrár
Kosningar 2010
Laus störf
Myndir
Netfanga- og símaskrá
Póstlisti
Samþykkt um hunda- og kattahald
Seyðfirðingar vikunnar
Sorpflokkun
Tenglasafn
Útgefið efni
Veðrið á Austurlandi
Nýjustu fundargerðir
Viðburðir

Seyðisfjarðarkaupstaður - Hafnargötu 44 - 710 Seyðisfjörður - Sími 470 2300 - Fax 472 1588 - sfk@sfk.is - Kt. 560269-4559