|
Til foreldra og forráðamanna grunnskólabarna Seyðisfjarðarskóla |
|
|
|
|
Miðvikudagur, 10 Mars 2010 |
|
Fimmtudaginn 11. mars er Þorlákur Helgason, verkefnisstjóri Olweusaráætlunarinnar á Íslandi, væntanlegur til okkar. Hann ætlar að fara yfir niðurstöður eineltiskönnunarinnar sem lögð var fyrir nemendur skólans í haust. Fundurinn hefst klukkan 17:15 í matsal Herðubreiðar og er sameiginlegur fyrir alla foreldra. Að honum loknum er sérstakur bekkjarfundur þar sem foreldrar hitta umsjónakennara barnsins síns. Mikilvægt er að heimili og skóli taki höndum saman og vinni gegn einelti og því nauðsynlegt að hvert heimili eigi fulltrúa á fundinum.
Með von um að sjá ykkur sem flest, starfsfólk Seyðisfjarðarskóla.
|