|
Föstudagur, 10 September 2010 |
|
Vegna fjölda áskorana og mikils áhuga væri gaman að koma Föstudagsmyndum af stað aftur hér á síðunni. Vefsíðustjóri auglýsir því hér með eftir myndum, bæði gömlum og einnig væri gaman að fá nýrri myndir, á tölvutæku formi. Ef einhverjir eiga myndasöfn sem þeir eru tilbúnir að deila með síðunni þá væri það ákaflega skemmtilegt og vel þegið. Best er að hafa samband við vefsíðustjóra á netfangið
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
. Meðfylgjandi er skemmtileg mynd tekin á grímuballi í Herðubreið, en ég veit því miður ekki hvaða ár. Bestu óskir um góða helgi, vefsíðustjóri.
|
|
|
Fimmtudagur, 09 September 2010 |
|
Vefsíðustjóra barst nú rétt í þessu blogg eftir Eirík Jónsson, sjónvarps- og fréttamann, þar sem hann gefur Skaftfelli - miðstöð menningar og bistói - alveg frábær ummæli. "Á Seyðisfirði er til að mynda eitt flottasta kaffihús Evrópu þar sem kokkarnir spila Doors í eldhúsinu og syngja með. Framreiða lasanja, pizzur og ýmsa smárétti með þeim hætti sem maður á helst að venjast í París. Þjónustufólkið í menningarmiðstöðinni Skaftafelli á Seyðisfirði talar ensku við viðskiptavinina en spænsku og ítölsku sín á milli. Á veggjum hanga svo frægar litamyndir Birgis heitins Andréssonar. Svona staðir eru ekki einu sinni til í Reykjavík." Dásamlegt, til hamingju Skaftfell! Fréttina má finna í heild sinni hér.
|
|
|
Fimmtudagur, 09 September 2010 |
|
Gestalistamenn septembermánuðar, eru þau Lina Jaros, Geir Mosed & Jens Reichert. Þau bjóða til listamannaspjalls í Skaftfelli, miðstöð myndlistar á Austurlandi föstudaginn 10. september klukkan 17:00. Þau munu einnig halda stutt erindi um verk sín og sýna myndir. Á sama tíma mun Jens Reichert opna sýninguna Washed ashore á Vesturveggnum og Geir Mosed opnar jafnframt sýninguna Plucked í Bókabúðinni - verkefnarými Skaftfells.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Fimmtudagur, 09 September 2010 |
|
Umboðsmaður barna er opinber talsmaður fyrir öll börn á Íslandi. Hlutverk hans er að vinna að því að bæta hag barna og unglinga og sjá til þess að tekið sé tillit til réttinda þeirra og hagsmuna á öllum sviðum samfélagsins. Umboðsmaður barna leiðbeinir öllum sem til hans leita um mál sem varða réttindi barna með einum eða öðrum hætti. Umboðsmaður barna vill vita hvað börn eru að hugsa, hvernig þeim líður og hvað þeim finnst um ýmsa hluti sem snerta þau og umhverfi þeirra.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Miðvikudagur, 08 September 2010 |
|
Ómar Bogason á heiðurinn af eftirfarandi ferðasögu og myndum. Föstudagurinn 4. september rann upp bjartur og fagur á Seyðisfirði og að venju voru starfsmenn Brimbergs árrisulir. En að þessu sinni var ferðinni ekki heitið í vinnuna en stefnan þess í stað sett inn til dala og upp til fjalla en með í för voru einnig nokkrir „betri helmingar“ og síungir eldri borgarar Seyðisfjarðar. Það var sem sagt eðalhópur sem settist upp í rútuna hjá Hjalta Bergssyni þar sem fararstjórinn, Jón Guðmundsson, tók á móti fólkinu með bros á vör og með hljóðnemann í hendinni og það er óhætt að segja að Jón hafi slegið í gegn með frábærri fararstjórn.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Miðvikudagur, 08 September 2010 |
|
Nú er komið að því að fara að hreyfa sig aftur innanhúss. Blakæfingar hefjast að nýju eftir sumarhlé fimmtudaginn 9. september klukkan 19.00. Þessi fyrsta æfing verður sameiginleg en síðan verðum við með æfingar á þriðjudögum og fimmtudögum fyrir sitt hvort kyn eins og í fyrra. Sunnudagsæfingar hefjast ekki fyrr en í október. Nýir velkomnir og fyrir þá er best að byrja strax en fyrstu vikurnar erum við í grunntækniatriðum og miklvægt að missa ekki af því. Meistaraflokkar bæði karla- og kvennaliðs Hugins eru skráð til þátttöku í 2. deild Íslandsmóts Blaksambands Íslands í vetur og ekki seinna vænna að drífa mannskapinn í gang. Að venju tökum við svo þátt í Öldungamóti Íslands í vor en það mót verður að þessu sinni í Vestmannaeyjum og verður þar án ef mikið fjör og mikið gaman. Það verður því nóg að gera hjá blökurum í vetur.
Ólafur Hr. Sigurðsson, blakþjálfari Hugins.
|
|
|
|