Breyttur útivistartími 1. maí

Ærslabelgur og sparkvöllur!

Vakin er athygli á að útivistartími barna og unglinga tekur breytingum 1. maí ár hvert. Frá þeim tíma mega 12 ára börn og yngri vera úti til klukkan 22.00. 13 til 16 ára unglingar mega vera úti til klukkan 24.00.

Ekki er æskilegt að börn séu á almannafæri utan fyrrgreinds tíma nema í fylgd með fullorðnum. Bregða má út af reglunum fyrir síðartalda hópinn þegar unglingar eru á heimleið frá viðurkenndri skóla-, íþrótta- eða æskulýðssamkomu. Aldur miðast við fæðingarár. Foreldrum/forráðamönnum er að sjálfsögðu heimilt að stytta þennan tíma og setja börnum sínum reglur um styttri útivistartíma.

Útivistarreglurnar eru samkvæmt barnaverndarlögum. Þeim er meðal annars ætlað að tryggja nægan svefn en hann er börnum og unglingum nauðsynlegur. Svefnþörfin er einstaklingsbundin en þó má ætla að börn og unglingar á grunnskólaaldri þurfi 10 tíma svefn á nóttu.

Einnig tilkynnast hér þær gleðilegu fréttir að, að öllu óbreyttu, verður sett loft í ærslabelginn á mánudagsmorguninn og sparkvöllurinn verður aftur opnaður. Það verður þó skoðað dag frá degi eins og aðrir hlutir, með tilliti til þess hvað Víðir segir.

Með kveðju, forvarnarfulltrúi.

hsam