ATH. Kynning á einstaklingum sem gefa kost á sér í heimastjórn

Framboð í heimastjórn?

Kynning á einstaklingum sem gefa kost á sér til heimastjórna

Einstaklingum sem vilja gefa kost á sér til heimastjórna býðst að kynna sig og sín áherslumál á vefsíðunni svausturland.is

Stofnaðar verða síður á svausturland.is fyrir hvert heimastjórnarsvæði þar sem upplýsingarnar verði birtar í stafrófsröð þeirra einstaklinga sem gefa kost á sér. 

Kosið verður til heimastjórna á Borgarfirði, Djúpavogi, Fljótsdalshéraði og Seyðisfirði. Nánari upplýsingar má finna hér á vefsíðunni.

Frambjóðendum er boðið að senda mynd af sér og stuttan kynningartexta á netfangið heimastjorn@svausturland.is. Að hámarki 200 orð. Í efninu þarf að koma fram nafn og heimilisfang frambjóðanda, sem eru þær upplýsingar sem kjósendur þurfa að skrá á kjörseðilinn.


Kosningar til heimastjórna eru nýmæli á Íslandi. Boð um kynningu á svausturland.is er tilraun til að bjóða frambjóðendum upp á vettvang til að kynna sig í ljósi þess að kosið er til heimastjórna í fyrsta skipti, og að um fordæmalausar aðstæður er að ræða í ljósi samkomutakmarkana.

Verkefnið Sveitarfélagið Austurland og ritstjórn svausturland.is ber ekki ábyrgð á því efni sem einstaklingar senda. Efninu verður ekki ritstýrt eða það prófarkalesið. Vanti mynd, nafn frambjóðanda eða heimilisfang verður efnið ekki birt.