2518. bæjarráð 29.07.20

2518. fundur bæjarráðs Seyðisfjarðarkaupstaðar

Miðvikudaginn 29.07.2020 kom bæjarráð Seyðisfjarðar saman til fundar á skrifstofu kaupstaðarins, Hafnargötu 44. Fundurinn hófst kl. 16:00. 

 

Fundinn sátu:

Þórunn Hrund Óladóttir í stað Rúnars Gunnarssonar formanns, L –lista.

Hildur Þórisdóttir, L -lista.

Elvar Snær Kristjánsson, D – lista.

Aðalheiður Borgþórsdóttir, bæjarstjóri.

Vilhjálmur Jónsson áheyrnarfulltrúi, B - lista.

 

Fundargerð ritaði Aðalheiður Borgþórsdóttir.

Fundargerð var færð í tölvu.

 

 

Gerðir fundarins:

1. Erindi:

1.1. Fljótsdalshérað - 20.07.2020 – Breytingar á aðalskipulagi Fljótsdalshéraðs, Fjarðarheiðargöng.

Bæjarráð Seyðisfjarðar veitir jákvæða umsögn varðandi tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Fljótsdalshéraðs 2008 – 2028 vegna Fjarðarheiðarganga fyrir sitt leyti og vísar erindinu til fullnaðarafgreiðslu í bæjarstjórn.

1.2. Philippe Clause  - 23.07.2020 – Gamla bókabúðin, Babylón, ósk um fjárstuðning.

Bæjarráð þakkar Philippe erindið og harmar hvernig komið er fyrir Babylón. Bæjarráð bendir á þær lausnir sem ríkisstjórnin býður einkafyrirtækjum uppá vegna COVID og einnig að bæjarsjóður hefur boðið fyrirtækjum upp á að seinka greiðslum fasteignagjalda. Bæjarsjóður getur ekki lagt til fjármagn í rekstur einkafyrirtækja.

1.3. Sýslumaðurinn á Austurlandi -  16.07.2020 - umsögn um rekstrarleyfi.

Erindinu vísað til umhverfisnefndar.

1.4. Austurbrú – 09.07.2020 – Skýrsla Orkustofnunar.

Eftirfarandi hlekkir voru meðfylgjandi erindinu: Frétt Orkustofnunar þar sem finna má hlekk á skýrsluna er hér. Frétt á Rúv er hér.

Lagt fram til kynningar.

1.5. Guðlaugur Sæbjörnsson fjármálastjóri Fljótsdalshéraðs. – 24.07.2020 -  Samantekt áætlana í sameinuðu sveitarfélagi fyrir 2021.

Lagt fram til kynningar.

1.6. HAUST – 13.07.2020 – Ársskýrsla

Lögð fram til kynningar.

1.7. Íþróttafélagið Huginn – 27.07.2020 -  Ósk um styrk vegna Sambandsþings ÚÍA 2020

Bæjarráð samþykkir að veita styrk upp á 135.000 kr og felur bæjarstjóra að ganga frá málinu.

 

2. Gamla ríkið – vinnuhópur, fundargerð 1 frá 20.07.2020 og 2. fundargerð frá 27.07.2020

Lagðar fram til kynningar.

 

3. Yfirlit yfir kostnað vegna endurskoðunar, fjármálaráðgjafar o.fl.

Lagt fram til kynningar.

 

 

Fundi slitið kl. 17:17

Fundargerð er á 2 bls.