5. fundur í hafnarmálaráði 04.05.20
5. fundur í hafnarmálaráði Seyðisfjarðar 2020
Þriðjudaginn 4. maí kemur hafnarmálaráð Seyðisfjarðarkaupstaðar saman til fundar í Zoom fjarfundi. Hefst fundurinn kl. 12:30
Fundinn sátu:
Þórunn Hrund Óladóttir formaður L-lista,
Guðjón Már Jónsson L-lista,
Oddný Björk Daníelsdóttir D- lista,
Aðalheiður Borgþórsdóttir hafnarstjóri.
Fundargerð ritaði Aðalheiður Borgþórsdóttir, hafnarstjóri. Fundargerð var færð í tölvu.
Gerðir fundarins:
1. Viðauki við fjárhagsáætlun 2020 vegna samdráttar í tekjum kaupstaðarins sem og vegna aukinna útgjalda til að mæta viðspyrnu í ljósi COVID-19.
Hafnarmálaráð leggur til við bæjarstjórn eftirfarandi viðauka við fjárhagsáætlun 2020:
Viðauki nr. 9, Deild 4100 Hafnarsjóður: Tekjur innan við það sem gert var ráð fyrir í fjárhagsáætlun, Tekjuminnkun samtals 80.000.000 króna, Útgjöld innan þess það sem gert var ráð fyrir í fjárhagsáætlun um 16.000.000 króna. Samtals nettó breyting 64.000.000 króna.
Nettóbreyting viðauka er 64.000.000 króna í reikningshaldi kaupstaðarins og Hafnarsjóðs. Aukum útgjöldum í viðaukanum verður mætt með lántöku að fjárhæð kr. 40.000.000 og af handbæru fé sveitarfélagsins .
Hafnarmálaráð leggur fram eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar:
„Bæjarstjórn samþykkir fyrirliggjandi viðauka“
Fundi slitið kl. 12.42