Nýir kennarar í listadeild
Nú þegar skólastarfið fer að hefjast er tímabært að kynna til leiks nýja kennara við tónlistarskólann/listadeild Seyðisfjarðarskóla. Í byrjun ágúst tók Vigdís Klara Aradóttir við stjórnun í deildinni. Vigdís Klara er hljóðfæraleikari og tónlistarkennari að mennt og lærði m.a. í Sviss og í Bandaríkjunum. Vigdís lauk síðan meistaraprófi í menningarstjórnun frá Háskólanum á Bifröst árið 2009. Hún vann við Skólahljómsveit Víðistaðaskóla, bæði sem stjórnandi og kennari, og kenndi við Skólahljómsveit Kópavogs á síðustu árum. Vigdís Klara mun kenna á klarinett og sjá um tónmennt á yngsta stigi.
Guido Baeumer er nýr tréblásarakennari og mun hann kenna á saxófón og þverflautu ásamt því að sinna tónmenntakennslu og heimilisfræðikennslu á mið- og unglingastigi. Guido er fæddur í Þýskalandi og stundaði tónlistarnám í Bremen í Þýskalandi, í Basel í Sviss og í Bandaríkjunum. Hann lauk kennaraprófum í Bremen og einleikaraprófi í Sviss. Guido spilar í dúettinum Duo Ultima ásamt píanóleikaranum Aladár Rácz og hafa þeir tekið upp nokkra geisladiska og leikið á fjölmörgum tónleikum um Evrópu.
Í tónlistarskólanum munu Charles Ross og Jón Hilmar Kárason kenna áfram sem stundakennarar.
Aðrir kennarar eru Kristjana Stefánsdóttir sem kennir söng í lotum og Rusa Petriashvili sem kennir á píanó og klassískan söng. Þá verður Guðrún Veturliðadóttir einnig með samspilssmiðjur fyrir nemendur sem stunda hljóðfæranám við deildina.
Nánar má lesa um aðra starfsmenna listadeildar á vefsíðu Seyðisfjarðarskóla - hér.