Sameiginlegt símanúmer og heimasíða

4 700 700

Símanúmer skrifstofu sameinaðs sveitarfélags er 4 700 700 og er síminn opinn milli kl. 8.00 og 15.45. Opnunartími skrifstofanna fjögurra er sá sami og verið hefur:

  • Á Borgarfirði eystra að öllu jöfnu frá kl. 8 - 12 og 13 – 17
  • Á Djúpavogi, mánudaga, miðvikudaga og föstudaga, frá kl. 10 - 12 og 13 – 15
  • Á Egilsstöðum frá kl. 8 - 15.45
  • Á Seyðisfirði frá kl. 10 - 12 og 13 - 14 

Fyrirhugað er að heimasíða sameinaðs sveitarfélags verði tekin í notkun þegar nafn sveitarfélagsins hefur verið staðfest. Um bráðabirgða síðu er að ræða. Ekki er gert ráð fyrir að loka gömlu heimasíðum Djúpavogshrepps, Fljótsdalshéraðs og Seyðisfjarðarkaupstaðar. Hins vegar liggur ekki fyrir með hvað hætti þær verða notaðar til framtíðar, en ljóst er að þeir hlutar sem snúa að mannlífi, samfélagi, myndasöfnum o.þ.h. verða til staðar á gömlu síðunum þar til ákveðið hefur verið hvort og hvernig þeim hlutum verður komið fyrir á nýrri heimasíðu sveitarfélagsins. Upplýsingar um þjónustu og stjórnsýslu nýja sveitarfélagsins verður fyrst og fremst að finna á tímabundnu sameiginlegu heimasíðunni og verður þeim eingöngu viðhaldið þar.