Sameining sveitarfélaga á Austurlandi

Ný kennitala 1. október
Mynd fengin af vef.
Mynd fengin af vef.

Með sameiningu fjögurra sveitarfélaga á Austurlandi og staðfest hefur verið af Sveitarstjórnarráðuneytinu mun verða til nýtt sveitarfélag á Austurlandi. Sveitarfélögin sem standa að þeirri sameiningu eru: Borgarfjarðarhreppur kt. 480169-6549, Djúpavogshreppur kt. 570992-2799, Fljótdalshérað k.t. 481004-3220 og Seyðisfjarðarkaupsstaður kt. 560269-4559.

Hið nýja sveitarfélag hefur fengið kennitölu 660220-1350 sem formlega verður til um mánaðarmótin sept/okt 2020. Þannig að allir reikningar eða kröfur frá og með 01.10.2020 sem tilheyra þeim mánuði skulu stofnaðir á þá kennitölu. Endanlegt nafn hins nýja sveitarfélags ákvarðast vonandi á fyrsta fundi nýrrar bæjarstjórnar sem verður í byrjun október.

Reikningar  fyrir vöru eða þjónustu veitta í janúar til og með september 2020 skulu færast á viðkomandi sveitarfélög. (fráfarandi sveitarfélög)

Ath. Hafnarsjóður mun verða á núverandi kennitölu Hafnarsjóðs Seyðisfjarðarkaupstaðar sem er 560269-4049 og skulu allir reikningar vegna hafna á Seyðisfirði, Djúpavogi og Borgarfirði eystra færast á þá kennitölu.

 

Vakin er athygli á að tekið er við rafrænum reikningum.

 

Tilkynnist þetta hér með fyrir hönd ofangreindra sveitarfélaga.

Björn Ingimarsson, bæjarstjóri Fljótsdalshéraðs

Aðalheiður Borgþórsdóttir, bæjarstjóri Seyðisfjarðarkaupsstaðar

Gauti Jóhannesson, sveitarstjóri Djúpavogshrepps

Jón Þórðarson, sveitarstjóri Borgarfjarðarhrepps