Tjaldsvæði
Tjaldsvæði Seyðisfjarðar
Ránargata 5
Sími : 472-1521
Netfang : camping@sfk.is
Umsjónarmaður Filippo Trivero
Tjaldsvæði Seyðisfjarðarer staðsett í hjarta bæjarins, er umgirt trjágróðri og hólfað niður með kjarri.
Tjaldsvæðið á Seyðisfirði er rómað fyrir góða þjónustu og hlýlegt umhverfi. Á svæðinu er þjónustuhús með aðstöðu fyrir gesti. Eldunaraðstaða og seturstofa er í þjónustuhúsinu. Á tjaldsvæðinu eru sturtur, salerni, þvottavél, þurrkari, borðsalur, eldunaraðstaða inni, frír aðgangur að interneti, útigrill og aðstaða fyrir húsbíla, þar með talið rafmagn og hreinsiaðstaða fyrir húsbíla-wc.
Í göngufæri er sjoppa, matvöruverslun, sundlaug, matsölustaðir, íþróttamiðstöð, sauna og heitir pottar, handverksmarkaður, Tækniminjasafnið, Skaftfell menningarmiðstöð, hjólaleiga, kajakleiga og margt fleira.
Opnunartími
- Opið frá 1. maí til 30. september
Tjaldsvæði Seyðisfjarðar er aðili að Útilegukortinu.
Aldurstakmark er 18 ára nema í fylgd forráðamanna.